Íslenskt mállíkan sem les skjal og merkir hvert atriði samkvæmt persónuverndarlögum
Vör er íslenskt mállíkan sem les skjal og merkir persónuupplýsingar samkvæmt lögum nr. 90/2018. Hún er opin á Hugging Face, ásamt Norn v4.
AIÍ síðustu viku fékk ég lánaða DGX Spark frá Nvidia til prófunar. Skjákortið deilir vinnsluminni með örgjörvanum; stýrikerfið sér um 122 GiB. Það dugði til LoRA-fínstillingar á líkani með 31 milljarði stika á einni borðtölvu. Þjálfun og mat fóru fram 23.–26. október.
Út komu tvö líkön, bæði byggð á Gemma 4 frá Google. Norn v4 er almennt íslenskt líkan sem beygir nafnorð rétt í 85,6% af 480 prófspurningum úr Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls, samkvæmt eigin mati á líkaninu fyrir kvöntun. Grunnlíkanið nær 70%. Hitt líkanið heitir Vör og gerir aðeins eitt. Það les íslenskan texta og leitar að persónuupplýsingum í honum.
Vör merkir hvert atriði með tegund og lagagrunni. Nafn og kennitala eru almennar persónuupplýsingar samkvæmt 3. gr. laga nr. 90/2018. Heilsufar, stéttarfélagsaðild og trúarskoðanir eru viðkvæmar. Sakaskrá og fjárhagsupplýsingar fá sína flokka. Að lokum segir hún hvort skjalið í heild sé viðkvæmt.
Á 317 prófskjölum fann Vör 98,7% aðgreindra samræmdra textabrota með persónuupplýsingum (1.428/1.447), án kröfu um rétt tegundarmerki og 99,7% beinna auðkenna. Ég prófaði líka nöfn sem hún sá aldrei í þjálfun, og þar fann hún 324 af 327. Þetta styður alhæfingu yfir á óséð nöfn innan dreifingar gerviprófgagnanna.
Prófskjölin eru þó gerviskjöl, eins og öll gögnin sem hún lærði af, og engin raunveruleg manneskja kemur fyrir í þeim. Næsta skref er að yfirfara hundrað skjöl handvirkt og prófa hana síðan á raunskjölum. Hún er líka veikari á stökum setningum en heilum skjölum, og sakaskrá er sá flokkur sem hún finnur síst.
Bæði líkönin eru opin á Hugging Face og keyra í Ollama á vél með stóru skjákorti (24 GB eða meira).
Nafnið er fengið úr Gylfaginningu, þar sem Vör er ein ásynjanna. „Hon er ok vitr ok spurul, svá at engi hlutr má hana leyna.“

Í tillögu að mannlegri stjórnarskrá fyrir gervigreind byggir Arif Jameel á Palermo-kaflanum mínum og tekur mögnunargjána inn í grein sína um samþjöppun valds.

Þann 18. mars 2026 samþykkti upplýsingatækniráð Þýskalands staðla, þar á meðal ODF (Open Document Format), sem bindandi grunn lausna innan Deutschland-Stack. Ákvörðunin tekur til þess ramma; hún er ekki almenn krafa um að öll skjöl opinberrar stjórnsýslu séu á ODF-sniði.

Ef það telst stjórnsýsluleg vanræksla að nota Claude til að dæma framlag fræðafólks, hvers vegna telst það þá „fræðilegur heiðarleiki“ að nota Turnitin til að dæma frumleika nemanda?