Ef það telst stjórnsýsluleg vanræksla að nota Claude til að dæma framlag fræðafólks, hvers vegna telst það þá „fræðilegur heiðarleiki“ að nota Turnitin til að dæma frumleika nemanda?
AIÞetta verður líklega það síðasta sem ég skrifa sem háskólanemi – í bili að minnsta kosti. Undanfarin tvö ár, samhliða vinnu minni við skapandi gervigreind (e. Generative AI), hef ég rannsakað uppgang þess sem ég kalla „Hinn stafræna Levíatan“ (Digital Leviathan): hægfara normaliseringu á valdi reiknirita yfir mannlegri dómgreind og þeim skaðlegu samfélagslegu áhrifum sem af því hljótast.
Að einhverju leyti má segja að þetta sé rökrétt framhald af BA-verkefninu mínu í lögfræði sem snéri að lögbundinni gagnageymd fjarskiptafyrirtækja. Eftir eina viku ver ég síðan meistararitgerð mína, Beyond Fragmentation: A Life-Value Alternative for AI Governance. Ég mun deila meiru úr henni fljótlega, en leyfið mér fyrst að klára það sem ég byrjaði á.
Lærdómurinn frá Bifröst er að við getum ekki treyst reikniritum til að vera dómarar. Lærdómurinn af Turnitin er að við getum ekki treyst stofnunum til að vernda okkur gegn þessum reikniritum.
Í fyrri hlutanum fjallaði ég um atvik hjá Háskólanum á Bifröst þar sem stjórnendur, samkvæmt fréttaflutningi, notuðu gervigreind til að dæma starfsferil starfsfólks síns. Við sáum reiðina. Við sáum „2/10“ einkunnina. Við sáum kerfið hafna þeirri hugmynd að „svartur kassi“ ætti að ákvarða faglegt virði fólks.
En á meðan við vorum upptekin af því að hneykslast fyrir hönd prófessoranna, gleymdum við nemendunum.
Áhyggjuefnið nær líka til námsmats þegar stofnanir nota sjálfvirkar skýrslur sem dóma. Turnitin notar önnur verkfæri en Claude og kanna þarf notkun og stillingar hjá hverjum skóla fyrir sig.
Við köllum það Turnitin.
Ef það telst stjórnsýsluleg vanræksla að nota Claude til að dæma framlag prófessors, hvers vegna gildir annað um nemendur? Bæði kerfin eru:
Hér er mikilvægt að gera greinarmun á tveimur ólíkum „fídusum“ innan Turnitin.
Annars vegar er Similarity Report, sem ber texta saman við gagnagrunn og finnur beina samsvörun – það er skýrsla um textasamsvörun, ekki niðurstaða um ritstuld.
Hins vegar er AI Writing Detection, nýja tólið sem á að grípa gervigreind. Það tól ber ekki saman texta, heldur leitar að tölfræðilegum mynstrum í setningauppbyggingu. Þetta er ekki sönnun, heldur spá. Rannsóknir og prófanir sýna ítrekað að þessir skannar gefa „fölsk jákvæð“ svör (e. false positives), þar sem heiðarlegum nemendum er gefin falleinkunn af véfrétt sem getur ekki útskýrt niðurstöðu sína. Þegar háskólar nota þetta líkindamat sem grundvöll fyrir agaviðurlögum er réttaröryggi nemenda fórnað fyrir þægindi tækninnar.
Munurinn? Prófessorarnir á Bifröst höfðu stéttarfélag og siðanefnd. Nemendurnir merkja í reit sem segir: „I Agree.“
Er ekki ákveðin kaldhæðni fólgin í því að íslenskir nemendur veiti leyfi til notkunar verka sinna með því að samþykkja samning á ensku?
Turnitin var keypt á 1,75 milljarða dollara. Í tilkynningu um kaupin er bæði fjallað um hugbúnaðinn og gagnasafn skilaverkefna; þar er ekki metið hversu mikið hvort um sig skýrir kaupverðið.
Þegar þú skilar ritgerð ertu ekki bara að fá einkunn. Þú ert að inna af hendi ólaunaða gagnavinnu. Verkefnið þitt getur bæst í samanburðarsafnið, eftir því hvernig verkefnaskilin eru stillt. Þetta er peningahringrásin að verki: hugverkarétti þínum er breytt í auðmagn þeirra. Skólagjöldin þín greiða fyrir þau forréttindi að fá að mata vélina.
Flestir nemendur lesa ekki notendaskilmálana (EULA). Ég gerði það.
„...You hereby grant to Turnitin... a non-exclusive, royalty-free, perpetual, worldwide, irrevocable license to use such papers...“
Þýðing: Þú borgar skólagjöld til að skapa verkið. Þú heldur eignarréttinum; samningurinn veitir áframhaldandi, ólaunað notkunarleyfi í tilgreindum þjónustutilgangi og leið til að óska eftir eyðingu.

Það er leið út. Turnitin hefur stillingu sem heitir „Do not store the submitted papers“ (Ekki vista skilin verk). Ef kennari virkjar þennan valmöguleika er ritgerðin þín skönnuð en ekki vistuð í gagnagrunninum. Hún er tékkuð fyrir ritstuld en aldrei bætt við varanlega gagnasafnið.
Hvers vegna er þetta ekki sjálfgefin stilling?
Vegna þess sem ég kalla ábyrgðarþoku (Responsibility Fog). Söfnunarstillingin er sjálfgefin (default). Fáir setja líklegast spurningarmerki við hana. Enginn „á“ ákvörðunina. Og þegar þú áttar þig á hvað gerðist er verkið þitt hugsanlega þegar komið í samanburðarsafnið.
Nemendur geta óskað eftir eyðingu í gegnum skólann samkvæmt notendaskilmálum Turnitin. Í 17. grein GDPR er einnig réttur til eyðingar persónuupplýsinga þegar skilyrði greinarinnar eru uppfyllt; lok námsmats ein og sér tryggja ekki þann rétt og undanþágur geta átt við.
Láttu þetta eða svipaðan texta fylgja með verkefninu þínu:
Ég skila þessu verkefni inn á Turnitin til að uppfylla kröfur þessa skóla. Ég veiti hins vegar ekki samþykki fyrir varanlegri vistun á mínum hugverkum í viðskiptalegum gagnagrunni. Ég mun leggja fram formlega beiðni um eyðingu strax að loknu mati.
Sendu þetta á kennarann þinn eftir að einkunn hefur verið gefin:
Efni: Formleg beiðni um eyðingu úr gagnagrunni Turnitin
Vinsamlegast áframsendið þetta á tengilið Turnitin hjá skólanum:
Ég skilaði verkefninu [Titill] (Auðkenni ritgerðar/Paper ID: [ID]) til námsmats. Nú þegar yfirferð er lokið óska ég eftir eyðingu samkvæmt notendaskilmálum Turnitin („License by You“) og, að uppfylltum skilyrðum, 17. grein GDPR. Ef áframhaldandi varðveisla er nauðsynleg, vinsamlegast skýrið tilgang hennar, lagagrundvöll og varðveislutíma.
Vinsamlegast staðfestið með tölvupósti þegar þessari aðgerð er lokið.
Eini lærdómurinn sem eftir stendur er þessi: við verðum að vernda okkur sjálf.
Turnitin User AgreementInsight Partners AcquisitionResisting EdTech (Hybrid Pedagogy)Turnitin Acquired by Advance PublicationsTurnitin "Do Not Store" Feature Guide
Vör er íslenskt mállíkan sem les skjal og merkir persónuupplýsingar samkvæmt lögum nr. 90/2018. Hún er opin á Hugging Face, ásamt Norn v4.

Í tillögu að mannlegri stjórnarskrá fyrir gervigreind byggir Arif Jameel á Palermo-kaflanum mínum og tekur mögnunargjána inn í grein sína um samþjöppun valds.

Þann 18. mars 2026 samþykkti upplýsingatækniráð Þýskalands staðla, þar á meðal ODF (Open Document Format), sem bindandi grunn lausna innan Deutschland-Stack. Ákvörðunin tekur til þess ramma; hún er ekki almenn krafa um að öll skjöl opinberrar stjórnsýslu séu á ODF-sniði.